
Greiðsluþátttaka við að fjarlægja brjóstapúða af heilsufarsástæðum
Sjúkratryggingum er nú heimilt að veita greiðsluþátttöku í aðgerðum til að fjarlægja brjóstapúða sem komið hefur verið fyrir í fegrunarskyni, teljist það nauðsynlegt af læknisfræðilegum ástæðum. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð þessa efnis og tók hún gildi 1. desember síðastliðinn.