Enn er rafmagnslaust á nokkrum svæðum

Nú í hádeginu er ennþá rafmagnslaust á nokkrum stöðum í Borgarfirði og á Mýrum eftir víðtækar bilanir sem urðu síðdegis í gær. Vegna viðgerða verður rafmagnslaust á Mýrum frá klukkan 12:30 til 14 í dag. Rafmagnslaust er frá Vatnshömrum og að Seleyri og áætlað að viðgerð ljúki klukkn 13. Þá er bilun í dreifikerfinu á Hvítárvöllum og áætlað að rafmagn komist á að nýju klukkan 15.

Rafmagnslaust er á hluta Reykholtsdals, frá Laugarholti í Bæjarsveit og að Runnum. Rafmagns komst á Lundarreykjadal um klukkan 12 í dag, en þar hafði verið straumlaust stíðan síðdegis í gær.

Uppfært klukkan 13:30: Rafmagnsbilun er í Lundarreykjadal. "Unnið er að staðsetja bilun nánar og vonast er að viðgerð gangi vel. Þó er búist við að verkefni muni standa yfir fram eftir degi," segir í tilkynningu og gert ráð fyrir að viðgerð verði lokið kl. 18.

Enn er rafmagnslaust á nokkrum svæðum - Skessuhorn