
Skrímsli var búið til á vegg í skólanum. Ljósm. gsnb.is
Hundrað daga hátíð á Nesinu
Í síðustu viku var haldið upp á það í 1.-4. bekk í Grunnskóla Snæfellsbæjar að það eru 100 dagar liðnir af þessu skólaári. Nemendur gerðu sér glaðan dag og unnu fjölbreytt verkefni í tengslum við töluna 100. Tilgangur verkefnisins er að þjálfa nemendur í tugakerfinu og telja saman tugi sem mynda síðan hundruð. Þau gerðu æfingar, teiknuðu útlimi á skrímsli og töldu saman 100 góðgæti sem þau fengu svo að bragða á. „Það er gaman að segja frá því að í einni smiðjunni kom Vigfús Vigfússon, húsasmiður í Ólafsvík, í heimsókn og ræddi við nemendur um „tímana tvenna,“ svaraði spurningum og sagði börnunum sögur. Það vill nefnilega þannig til að Viffi verður 100 ára á árinu! Allir höfðu gagn og gaman af,“ segir í frétt á vefsíðu skólans.