Á myndinni er gamall trukkur frá ÞÞÞ með kútterinn á sérsmíðuðum vagni hvar ekið var með hann frá Slippnum, þar sem hann hafði verið tekinn á land árið áður. Þarna er ekið framhjá Landsbankahúsinu á Akratorgi vorið 1975. Til vinstri sýnist Halla vera Brandur Fróði Einarsson lögregluþjónn og Adolf rafveitustjóri. Hægra megin eru svo Magnús Magnússon á Söndum og Geiri á Bjargi. Ljósm. HB

Halli Bjarna grúskar í gömlum myndum

Haraldur Bjarnason blaðamaður frá Akranesi er nú sestur í helgan stein og býr í Danmörku ásamt Helle eiginkonu sinni. Hann er nú að grúska í gömlum myndum og filmum meðal annars frá tíma hans við blaðamennsku; á Akranesi og Austurlandi. Nýverið fann hann filmur frá árinu 1975 sem sýna flutning kútters Sigurfara frá Slippnum og upp að Görðum þá um vorið. Síðan hefur Sigurfari staðið þar, en verður sífellt feysknari með tímanum.

Halli Bjarna grúskar í gömlum myndum - Skessuhorn