Útbreiðsla loðnu í janúar samkvæmt bergmálsgildum (Árni Friðriksson rauður, Polar Ammassak grænn, Bjarni Sæmundsson blár og Ásgrímur Halldórsson bleikur).

Loðnuleiðangur breytir ekki fyrri ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun mun ekki breyta fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar á þessari vertíð eftir mælingar síðustu vikuna. Ástæða þess er að lítið mældist og sterkar líkur á því að loðna sé enn undir hafísnum norðvestur af Íslandi. Þetta eru helstu niðurstöður mælinga sem gerðar voru af rannsóknarskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni ásamt loðnuveiðiskipunum Polar Ammassak og Ásgrími Halldórssyni á tímabilinu 16.-23. janúar. Út af Austfjörðum varð ekki vart við loðnu og einnig mældist lítið magn á norðaustur hluta svæðisins, en þetta eru þau svæði þar sem fremsta hluta loðnugöngunnar er jafnan að finna á þessum tíma (1. mynd).

Loðnuleiðangur breytir ekki fyrri ráðgjöf - Skessuhorn