Svipmynd frá fundinum. Ljósm. SAF

Staða ferðaþjónustunnar er að styrkjast

Samtök ferðaþjónustunnar, Íslenski ferðaklasinn og KPMG héldu í gærmorgun sína árlegu Nýársmálstofu ferðaþjónustunnar. Á fundinum voru kynntar niðurstöður viðhorfskönnunar sem KPMG framkvæmdi meðal ferðaþjónustufyrirtækja um áramótin, auk þess sem rætt var um mannauðsmál innan ferðaþjónustunnar og framtíð atvinnugreinarinnar. Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra ferðamála ávarpaði málstofugesti.