
Viðbyggingin er nánast tilbúin að utan. Ljósm. vaks
Ný viðbygging Vignis G. Jónssonar tilbúin í vor
Fyrirtækið Vignir G. Jónsson ehf. hóf í febrúar á síðasta ári framkvæmdir á lóð sinni við Smiðjuvelli 4 á Akranesi þar sem verið er að byggja nýja ellefu hundruð fermetra viðbyggingu við núverandi hús. Undirbúningur hófst fyrir tveimur árum síðan og segir Jón Helgason framkvæmdastjóri Vignis að stefnan sé að flytja inn næsta vor og eru menn jákvæðir um að það takist. „Það hefur orðið smá töf á verkinu en þetta gengur ágætlega og það eru menn að koma með búnaðinn til að setja inn í húsnæðið í lok janúar. Það tekur um tvo mánuði og vonandi náum við að prufukeyra í apríl, það er stefnan.“