Fjölbreytt störf auglýst til umsóknar í nýju Skessuhorni

Nokkur og býsna ólík störf eru auglýst til umsóknar í Skessuhorni sem kom út í dag og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér blaðið eða PDF útgáfu þess. Þessi störf eru:

Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir tvö störf; lektor í landslagsarkitektúr og stöðu nýdoktors.

Gleipnir, nýsköpunar- og þróunarsetur á Vesturlandi auglýsir starf framkvæmdastjóra. Umsóknarfrestur er til 31. janúar.

PCC á Bakka við Húsavík auglýsir starf vaktstjóra í lokavöru framleiðslu.

Klafi auglýsir vegna vaxandi umsvifa, störf vélamanna á Grundartangasvæðinu.

Þá auglýsa Faxaflóahafnir annars vegar eftir vélstjóra og hafnarverði í afleysingar sumarið 2024 og hins vegar eftir afleysingafólki í sumar við hafnargæslu á Grundartanga.

Land og skógur, sameinuð stofnun Skógræktar og Landgræðslunnar, auglýsir starf skógræktarráðgjafa með aðsetur í Hvammi í Skorradal.

Fjölbreytt störf auglýst til umsóknar í nýju Skessuhorni - Skessuhorn