
Gísli eins og hann lítur út í dag. Ljósm. vaks
Með lífsgleðina að vopni og skærin á lofti
Um áramótin tilkynnti rakarinn og Skagamaðurinn Gísli Jens Guðmundsson að hann hefði selt stofuna sína, Rakarastofu Gísla, og í leiðinni lagt skærin á hilluna. Gísli sem er fæddur árið 1971 hafði starfað sem hárskeri í 33 ár og tók þá ákvörðun að nú væri kominn tími á að taka sér eitthvað nýtt fyrir hendur. Gísli kom við á ritstjórn Skessuhorns í síðustu viku og spjallaði við blaðamann um lífið, vinnuna og tilveruna.