Á myndinni má sjá tíu efstu í kjörinu og fulltrúa þeirra ásamt starfsmönnum Öldunnar sem aðstoðuðu við verðlaunaafhendinguna. Ljósmyndir: vaks

Bjarki efstur í kjöri Íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2023

Síðastliðinn laugardag var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi hver hefði verið kjörinn Íþróttamanneskja Borgarfjarðar fyrir árið 2023. Farið var í samstarf við Ölduna, sem útbjó gjafapoka fyrir þau sem lentu í efstu tíu sætunum, auk þess sem þeir Guðmundur Ingi, Guðmundur Stefán og Ölver aðstoðuðu við verðlaunaafhendinguna. Nýtt heiti var tekið upp á þessum verðlaunum á síðasta ári en er að öðru leyti sama viðurkenning og mörg undanfarin ár. Að kjörinu standa Ungmennasamband Borgarfjarðar og sveitarfélögin á starfssvæðinu og voru ýmis önnur verðlaun afhent á samkomunni. Guðrún Hildur Þórðardóttir sambandsstjóri UMSB bauð gesti velkomna og síðan flutti Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri Borgarbyggðar ávarp.

Bjarki efstur í kjöri Íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2023 - Skessuhorn