
Hvalskurður í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Ljósm. mm
Ráðherra gætti ekki meðalhófs þegar hvalveiðar voru stöðvaðar
Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni vegna kvörtunar Hvals hf. um frestun upphafs hvalveiða síðastliðið sumar og látið í ljós álit sitt vegna málsins. Í álitinu kemur m.a. fram að reglugerð um frestun upphafs hvalveiða, degi áður en þær áttu að hefjast í júní í fyrrasumar, hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar og að eins og atvikum var háttað hafi útgáfa og undirbúningur reglugerðarinnar ekki samrýmst kröfum um meðalhóf. Umboðsmaður beinir ekki sérstökum tilmælum til ráðuneytisins eða Svandísar Svavarsdóttur um úrbætur. Hann beinir því hins vegar til ráðuneytisins að hafa þau sjónarmið sem fram koma í álitinu í huga til framtíðar.