
Jón Einar segir að tófan þrengi að í stóru eyjunum meðan hún sé til staðar og þá sé klassíska aðlögun æðarfuglanna að verpa í smærri eyjunum yst eða fjærst landi. „En minkurinn eyðileggur það því hann er strand- og hafrænn í háttalagi, syndur sem selur.“
Minkurinn erfiður æðarvarpi
Jón Einar Jónsson forstöðumaður rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi er einn höfunda nýrrar vísindagreinar um breytingar í lífríki í Breiðafjarðareyjum. Þar er sérstaklega horft til breytinga á stofnstærð æðarfugls eftir að minkurinn gerði sig heimakominn í eyjunum á sínum tíma.