
Gervigreind í námi vandmeðfarin
Notkun gervigreindar í námi og starfi er nú víða í umræðunni. Í skilaboðum Háskóla Íslands til nemenda er sérstaklega varað við notkun hennar við úrvinnslu verkefna, enda þurfi hún að uppfylla kröfur hans bæði frá tæknilegu og siðferðilegu sjónarhorni. Skólinn er með sérstaka upplýsingasíðu um gervigreind. Þar er m.a. kveðið á um að um notkun hennar gildi sömu siðferðislegu reglur og skyldur og um notkun annarra tækja og tóla. Ekkert banni nemendum að leita að heimildum með aðstoð hennar, en það er hins vegar ekki það sama og að nota svar sem gervigreind skrifar, sem heimild. Fram kemur einnig að um notkun gervigreindar í skólastarfi gildi sömu reglur og um notkun allra annarra heimilda og aðstoðar í námi; vísa þurfi til heimilda skv. alþjóðlegum tilvitnunarreglum hverrar fræðigreinar í samræmi við viðurkennda staðla Háskólans.