
Borgarbyggð mun endurskoða gjaldskrárhækkanir komi til þjóðarsáttar
Eins og kunnugt er standa nú yfir viðræður milli samtaka launafólks og atvinnurekenda í landinu. Kallað hefur verið eftir því að ríki, sveitarfélög og fyrirtæki haldi aftur af gjaldskrárhækkunum eða felli þær niður verði það til þess að sátt skapist um langtímasamninga með verðstöðugleika að markmiði. Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær ályktun vegna málsins. Þar segir að verðstöðugleiki sé eitt stærsta hagsmunamál íbúa og fyrirtækja í Borgarbyggð og um land allt. „Lækkun verðbólgu, verðbólguvæntinga, stýrivaxta og ekki síður langtímavaxta skiptir miklu máli fyrir fjárhagslega afkomu Borgarbyggðar, stækkun byggðar og fyrirhugaða uppbyggingu innviða. Byggðarráð Borgarbyggðar styður því eindregið að á vinnumarkaði sé lögð áhersla á langtímasamninga með verðstöðugleika og kaupmátt til langs tíma að leiðarljósi.“