
Bifreiðastyrkir til fólks með hreyfihömlun
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur í sér fyrstu hækkun í átta ár á uppbótum og styrkjum til bifreiðakaupa fyrir hreyfihamlað fólk. Einnig er nú tryggt að hækkanir á uppbótum og styrkjum vegna slíkra bifreiðakaupa eigi sér stað árlega en ekki á margra ára fresti eins og verið hefur. Að auki verður hægt að sækja um styrk til Orkusjóðs vegna sérútbúinna hreinna rafbíla fyrir hreyfihamlaða án þess að hámark sé á kaupverði þeirra.