Útskýrir ástæður verðhækkunar í Guðlaugu

Ný gjaldskrá tók gildi í Guðlaugu á Akranesi 1. janúar síðastliðinn. Stakur miði fyrir 18 ára og eldri fór úr 500 krónum í 2.500 krónur en frítt er áfram fyrir 17 ára og yngri. Stakur miði fyrir eldri borgara kostar 1.250 krónur og allir þeir sem eru með árskort í Jaðarsbakkalaug fá frítt í Guðlaugu. Hægt er að kaupa tíu skipta kort í Guðlaugu sem kostar 17 þúsund krónur, eða 17 hundruð krónur fyrir hvert skipti. Aðgangur að Jaðarsbakkalaug fylgir með hverjum keyptum miða og þar er meðal annars hægt að komast í gufubað og heitar sturtur.

Útskýrir ástæður verðhækkunar í Guðlaugu - Skessuhorn