
Fagna á fimmtudaginn 120 ára afmæli Kaupfélags Borgfirðinga
Kaupfélag Borgfirðinga var stofnað 4. janúar árið 1904 og er því 120 ára nk. fimmtudag. Tímamótanna munu félagsmenn minnast með kaffiboði í verslunarhúsi félagsins við Egilsholt á sjálfan afmælisdaginn. Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri segir að boðið verði upp á rjómaköku í tilefni dagsins og hvetur hún félagsmenn og héraðsbúa að líta við og þiggja kaffi.