Guðni Th. Jóhannesson flytur nýársávarp sitt. Skjáskot af RUV.is

Guðni gefur ekki kost á sér til endurkjörs

Mikillar eftirvæntingar gætti hjá mörgum landsmönnum vegna nýársávarps Guðna Th. Jóhannessonar forseta í dag, nýársdag. Hann hafði áður sagt að þá myndi hann gefa það út hvort hann byði sig fram til að gegna embætti forseta þriðja kjörtímabilið. Guðni var eins og kunnugt er kosinn forseti Íslands vorið 2016 og náði svo yfirburðakosningu 2020. Kjörtímabilinu lýkur í sumar. Guðni gaf það út árið 2016 að hann myndi að hámarki gefa kost á sér í tvö eða hámark þrjú kjörtímabil. Hann tilkynnti í dag að hann muni ekki gefa kost á sér í forsetakosningum í sumar. Við þá ákvörðun kvaðst hann hafa látið hjartað ráða. „Maður kemur í manns stað,“ sagði Guðni Th Jóhannesson.

Guðni gefur ekki kost á sér til endurkjörs - Skessuhorn