Kjöri Íþróttamanns Grundarfjarðar var lýst á gamlársdag. F.v. Dagný Rut Kjartansdóttir, Sigurþór Jónsson og Anna María Reynisdóttir sem hreppti titilinn. Ljósm. tfk

Anna María er íþróttamaður Grundarfjarðar

Kjöri Íþróttamanns Grundarfjarðar var lýst í gær, á gamlársdag, við athöfn í Samkomuhúsinu. Þrjár tilnefningar höfðu borist. Voru þær frá Ungmennafélagi Grundarfjarðar, Skotfélagi Snæfellsness og Golfklúbbnum Vestarr, GVG. Við sama tækifæri voru sjálfboðaliðar heiðraðir fyrir störf í þágu íþrótta- og tómstundamála í Grundarfirði og sængurgjöf samfélagsins afhent foreldrum barna sem fæddust á nýliðnu ári.

Anna María er íþróttamaður Grundarfjarðar - Skessuhorn