
Borgarfjörður og Hafnarfjall skömmu fyrir jól. Ljósm. Kristín Jónsdóttir Hálsum
Snjóar í dag suðvestanlands
Í dag verður suðlæg eða breytileg átt á landinu, 3-10 m/s og víða snjókoma, en úrkomulítið norðaustantil. Mest verður snjókoman á suðvesturhorninu og bendir Vegagerðin á að talsverðs snjókoma og blint verði á köflum með erfiðum akstursskilyrði suðvestantil á landinu í dag, einkum á Hellisheiði og í Þrengslum til kl 20, og síðar á Reynisfjalli eftir kl 18 og fram á nótt. Hér á Vesturlandi gæti snjóað síðdegis og undir kvöld. Frost verður 0 til 12 stig, mest í innsveitum á Norðausturlandi.