Hér var slökkvistarfi lokið og verið að reykræsta húsið. Ljósm. mm

Kviknaði í jólaskreytingu

Eldur kom upp í jólaskreytingu í einbýlishúsi við Presthúsabraut á Akranesi að kvöldi Þorláksmessu. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út og gekk slökkvistarf fljótt og vel og engan sakaði. Eldurinn var staðbundinn við skreytinguna og náði ekki að breiða úr sér. Reykræsta þurfti húsið.

Kviknaði í jólaskreytingu - Skessuhorn