Vetrarfærð. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Vetrarveður og færð gæti spillst á aðfangadag

Veðurstofan er með gula viðvörun í gildi á morgun, aðfangadag jóla, fyrir allt vestanvert landið. Á spásvæði Faxaflóa er gert ráð fyrir að frá því í fyrramálið og fram á kvöld verði norðan 13-23 m/s og hvassast í vindstrengjum á Snæfellsnesi. Líkur á éljum með erfiðum akstursskilyrðum, einkum norðantil á svæðinu. Útlit er fyrir skafrenning um tíma sem gæti hamlað skyggni, einkum í fyrramálið. Á spásvæðinu Breiðafjörður verður frá því á miðnætti í kvöld og til klukkan 18 á aðfangadag norðan 15-23 m/s og éljagangur. Skafrenningur gæti takmarkað skyggni. Erfið eða léleg akstursskilyrði og líkur á staðbundinni ófærð.

Fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám þegar nær dregur aðfangadegi. Þá er þeim sem ætla í bílferðir bent á að hafa hlýjan klæðnað með í bílum sínum. Komum heil heim!

Vetrarveður og færð gæti spillst á aðfangadag - Skessuhorn