Vínartónleikar Kórs Akraneskirkju verða 3. janúar í Bíóhöllinni

Kór Akraneskirkju heldur Vínartónleika í Bíóhöllinni á Akranesi, miðvikudag 3. janúar 2024 klukkan 20. „Þetta verða hátíðartónleikar, síðkjólar og dans, í samvinnu kórsins, Bíóhallarinnar og Kalman listafélags,“ segir í tilkynningu.

Kórinn hefur fengið til liðs við sig einvalalið tónlistarfólks; Björgu Þórhallsdóttur sópran, Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur sópran, Kristján Jóhannsson tenór og hljóðfæraleikarana Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara, Sigurð Ingva Snorrason klarinettuleikara, Hávarð Tryggvason kontrabassaleikara og Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara. Kynnar á tónleikunum verða Jakob Þór Einarsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir.

Miðasala fer fram í versluninni Bjargi á Akranesi og á Tix.is

-fréttatilkynning

Vínartónleikar Kórs Akraneskirkju verða 3. janúar í Bíóhöllinni - Skessuhorn