Átta af þeim tíu sem útskrifuðust frá skólanum fyrir jólin. Ljósm. sá

Tíu útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Miðvikudaginn 20. desember voru tíu nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Fimm nemendur luku námi á félags- og hugvísindabraut, einn lauk námi á náttúru- og raunvísindabraut, þrír á opinni braut og einn nemandi lauk námi á íþróttabraut. Með þessum hóp hefur skólinn útskrifað 570 nemendur frá fyrstu útskriftinni sem var í desember 2005.

Tíu útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga - Skessuhorn