Stuðningsgreiðslur til bænda voru greiddar í gær

Matvælaráðuneytið greiddi í gær, 21. desember, út viðbótarstuðningsgreiðslur til bænda á grundvelli tillagna ráðuneytisstjórahóps þriggja ráðuneyta; matvælaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og innviðaráðuneytis, sem skipaður var í lok október vegna fjárhagsstöðu bænda. Viðbótarstuðningurinn, alls 2,1 milljarður króna, var greiddur út til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu innan landbúnaðarins. Lögð var áhersla á að styðja sérstaklega við yngri bændur sem tekið hafa við búum síðustu ár og bændur sem fjárfest hafa í framleiðsluaðstöðu síðustu ár í nautgripa- og sauðfjárrækt. Þá eru einnig aukagreiðslur til greina sem búið hafa við langvarandi afkomubrests.

Stuðningsgreiðslur til bænda voru greiddar í gær - Skessuhorn