Grundartangahöfn og Elkem Ísland. Ljósm. mm

Fresta gangsetningu ofns 3

Elkem Ísland mun fresta gangsetningu á ljósbogaofni 3 um einn mánuð. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að þessi ákvörðun hafi verið tekin í kjölfar tilkynningar frá Landsvirkjun í síðustu viku um nauðsyn raforkuskerðingar til stórra orkunotenda vegna lágs vatnsborðs í helstu uppistöðulónum. Rekstur á ofni 3 var stöðvaður tímabundið í haust til að flýta fyrir viðhaldi hans. Endurbætur á ofninum munu þýða bætt rekstraröryggi, aukin hagkvæmni og ekki síst munu þær auka öryggi starfsfólks. „Fyrirhugaðri gangsetningu hefur nú verið frestað til loka janúar 2024. Þessi frestun hefur engin áhrif á viðskiptavini eða starfsmenn,“ segir í tilkynningunni.

Fresta gangsetningu ofns 3 - Skessuhorn