Útskriftarhópurinn haustið 2023 með skólameistara og áfangastjóra. Ljósmyndir: Blik

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Síðastliðinn miðvikudag voru 53 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. 19 luku burtfaraprófi í húsasmíði, tveir nemendur eru að ljúka bæði burtfaraprófi í húsasmíði og viðbótarnámi til stúdentsprófs, átta hafa lokið burtfararprófi úr rafvirkjun, einn nemandi er að ljúka bæði burtfararprófi í rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs. 12 luku burtfararprófi af sjúkraliðabraut, einn nemandi bæði burtfararprófi á sjúkraliðabraut og viðbótarnámi til stúdentsprófs og einn lauk burtfararprófi í vélvirkjun. Alls höfðu 12 nemendur lokið stúdentsprófi.

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands - Skessuhorn