Vesturlandsvegur lokaður í Melasveit (uppfært)

Laust fyrir klukkan 15 í dag varð alvarlegt bílslys á Vesturlandsvegi í Melasveit, ekki fjarri Skipanesi. Vegurinn hefur verið lokaður síðan og löng bílaröð hefur myndast beggja vegna slysstaðarins. Samkvæmt frétt Vísis voru þrír slasaðir og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á svæðið. Auk þess eru fjölmargir viðbragðsaðilar frá Borgarnesi og Akranesi á vettvangi.

UPPFÆRT Kl. 16:08:

Haft er eftir Ásmundi Kr Ásmundssyni yfirlögregluþjóni á fréttavef RÚV að þrír hafi verið í tveimur bílum sem rákust saman á þjóðveginum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug með tvo hinna slösuðu á Landspítalann í Fossvogi en einn var fluttur með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akranesi. Margra kílómetra röð bíla er ennþá beggja vegna slysstaðarins. Hægt er að aka hjáleið um Svínadal og yfir Dragháls, en reikna má með að vegurinn verði lokaður eitthvað frameftir degi.

Vesturlandsvegur lokaður í Melasveit (uppfært) - Skessuhorn