Sest var niður og gluggað í myndirnar í fimm albúmum, ýmsar sögur voru rifjaðar upp. F.v. Jóhanna Skúladóttir héraðsskjalavörður og Ásmundur Guðmundsson frá Safnahúsi Borgarfjarðar, Sigurður Guðmundsson fv. framkvæmdastjóri Sólfells, Guðbjartur Á Ólafsson fv. byggingastjóri og Guðsteinn Einarsson fv. kaupfélagsstjóri. Ljósm. mm

Myndir af líflegri byggingasögu á fjögurra ára tímabili

Í gær mætti Guðbjartur Á Ólafsson byggingastjóri í Safnahús Borgfirðinga í Borgarnesi. Tilefnið var að færa safninu til varðveislu og sýningar fimm ljósmyndaalbúm sem hann safnaði á árunum 2000-2003. Þessi ár var hann byggingastjóri í nokkrum stórum verkefnum fyrir Sólfell í Borgarnesi. Með Guðbjarti í för var Sigurður Guðmundsson sem stýrði Sólfelli á sínum tíma og Guðsteinn Einarsson fyrrverandi kaupfélagsstjóri.

Myndir af líflegri byggingasögu á fjögurra ára tímabili - Skessuhorn