Fyrsta meðalhraðamyndavélin var sett upp á Grindavíkurvegi fyrir fjórum árum. Nú er sambærilegur búnaður kominn upp í Dýrafjarðargöngum og Hvalfjarðargöngum. Ljósm. Víkurfréttir

Sjálfvirku meðalhraðaeftirliti komið upp í jarðgöngum

Sjálfvirkt hraðaeftirlit er ein af megin áherslum í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda. Hraðamyndavélar eru fyrst og fremst settar upp á vegköflum þar sem slys eru mörg, en einnig er lögð áhersla á að setja slíkan búnað upp í jarðgöngum til að draga úr líkum á að slys verði. Nú hefur sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit verið tekið í notkun í Dýrafjarðargöngum á Vestfjörðum og á allra næstu vikum, eða jafnvel á næstu dögum, verður slíkt hið sama gert í Hvalfjarðargöngum. Þetta staðfestir G Pétur Matthíasson forstöðumaður samskipta hjá Vegagerðinni í samtali við Skessuhorn.

Sjálfvirku meðalhraðaeftirliti komið upp í jarðgöngum - Skessuhorn