Notendaráð lýsir vonbrigðum með fjárhagsáætlun

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi telur að með tillögu að fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir næsta ár og framkvæmdaáætlun til ársins 2027 sé bæjarstjórn í raun að færa uppbyggingu Fjöliðjunnar á byrjunarreit fjórum og hálfu ári eftir að húsnæði Fjöliðjunnar brann 7. maí 2019. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins frá því á mánudaginn.

Notendaráð lýsir vonbrigðum með fjárhagsáætlun - Skessuhorn