
Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur – Fiskbollur í felubúningi
Matvælastofnun varar neytendur sem eru með ofnæmi eða óþol á einni framleiðslulotu af Ora fiskbollum í tómatsósu sem gæti verið fiskibollur í karrísósu með ranga merkingu um ofnæmis- og óþolsvalda. Fyrirtæki ÓJ-K-ÍSAM hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit í Reykjavík innkallað vöruna.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: ORA, Vöruheiti: Fiskbollur í tómatsósu Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 28.06.26 Lotunúmer: L97651. Nettómagn: 850 g. Framleiðandi: ORA, Vesturvör 12, 200 Kópavogi Framleiðsluland: Ísland
Dreifing: Verslanir Bónuss, Extra og Krónunnar um land allt, Fjarðarkaup, Heimkaup, Kaupfélag Húnvetninga, Verslunin Kassinn, Plúsmarkaðurinn, Pétursbúð, Verslun Einars Ólafssonar, Hlíðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, verslunin Kauptún, verslunin Kassinn, Hraðbúðin N1 Hellissandi og Melabúðin.