Skallagrímsmenn eru með fjögur stig eftir fjóra leiki í fyrstu deildinni. Ljósm. glh

Skallagrímur tapaði á móti Þrótti Vogum

Þróttur Vogum og Skallagrímur mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Sandgerði. Það var nánast jafnt á öllum tölum í fyrsta leikhluta, stigamunur liðanna varð mest þrjú stig og gestirnir úr Borgarnesi höfðu tveggja stiga forystu við lok hans, 17:19. Í öðrum leikhluta voru Skallagrímsmenn ívið sterkari og náðu 15 stiga forskoti þegar tæpar fimm mínútur voru liðnar af honum, 23:38. Heimamenn í Þrótti náðu síðan aðeins að klóra í bakkann með góðum kafla og minnkuðu muninn í fimm stig, 33:38; áður en Skallagrímsmenn gáfu aftur í og leiddu með ellefu stigum í hálfleik, staðan 33:44 Skallagrími í vil.

Skallagrímur tapaði á móti Þrótti Vogum - Skessuhorn