Már og Laddi gefa út nýtt jólalag

Már Gunnarsson og Laddi gáfu út glænýtt jólalag í gær en lagið heitir Mér finnst ég bara eiga það skilið. Már samdi lagið sjálfur en höfundur texta er Tómas Eyjólfsson. ,,Lagið fjallar um að þó lífið sé stundum erfitt þá megi alltaf líta á björtu hliðarnar og gera sér glaðan dag. Við eigum öll skilið að komast í hátíðarskap um jólin. Hvað er betra en að lyfta sér upp og splæsa í smá fínheit,“ tjáir Már Skessuhorni.

Már og Laddi gefa út nýtt jólalag - Skessuhorn