Fjallið Þorbjörn í Grindavík. Ljósm. björgunarsveitin Þorbjörn

Hádegisskjálftinn fannst vel á Akranesi

Jörð heldur áfram að skjálfa á Reykjanesi þar sem yfir tíu þúsund jarðskjálftar hafa mælst í hrinu sem hófst 25. október á svæðinu norðan við Grindavík. Fólk á suðvesturhorninu fann vel fyrir 4,5 stiga jarðskjálfta sem átti upptök sín um 2,5 km norðaustur af Þorbirni við Grindavík klukkan 12:19 í dag. Skjálftinn fannst meðal annars á Akranesi og á ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns við Garðabraut lýsti hann sér eins og hægar bylgjuhreyfingar.

Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að ört landris við Svartsengi og Þorbjörn séu ekki góðar fréttir í ljósi staðsetningar. Langvarandi landris sé til marks um að töluvert hafi safnast af kviku á svæðinu og því ætti eldgos þar að vera aðeins kraftmeira en síðustu tvö. Hann segir farsælla að viðbragðsaðilar geri í undirbúningi sínum ráð fyrir slæmri útkomu til að þeir séu betur í stakk búnir að leysa málin skjótt og örugglega.

Hádegisskjálftinn fannst vel á Akranesi - Skessuhorn