
Hljómsveitin Ylja lék fyrir gesti á Rúben á Rökkurdögum árið 2014. Ljósm. úr safni
Rökkurdagar hefjast um helgina í Grundarfirði
Eins og undanfarin ár efnir menningarnefnd Grundarfjarðarbæjar til Rökkurdaga, menningarhátíðar Grundfirðinga. Nefndin leitaði til íbúa um framlag og leggja fjölmargir bæjarbúar sitt af mörkum til skemmtilegrar dagskrár.