
42 fyrirtæki framúrskarandi á Vesturlandi samkvæmt Creditinfo
Alls eru 42 fyrirtæki á Vesturlandi, eða 4,2% af heildarfjöldanum yfir landið, á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki árið 2023. Fimm efstu sæti listans á Vesturlandi skipa: Límtré-Vírnet, Hraðfrystihús Hellissands, Leigufélagið Bríet, KG Fiskverkun og Sementsverksmiðjan. Aðeins eitt fyrirtæki á Vesturlandi hefur verið á listanum á hverju ári síðan hann var fyrst gefinn út árið 2010 en það er jarðvinnuverktakafyrirtækið Bjarmar á Akranesi. Tvö fyrirtæki á Vesturlandi koma að þessu sinni ný inn á listann, en það eru Verslunin Nína á Akranesi og Apótek Vesturlands sem hefur starfsstöðvar á Akranesi, Borgarnesi og í Ólafsvík. Alls eru 16 fyrirtæki frá Akranesi á listanum, 14 úr Snæfellsbæ, 6 úr Borgarnesi en færri af öðrum stöðum í landshlutanum (sjá lista hér að neðan) .