Kaupangur (Suðurfrá) er elsta húsið í Borgarnesi, byggingarár er skráð 1876. Þar voru hjónin Jón Björnsson frá Bæ og Helga María Björnsdóttir frá Svarfhóli búsett í rúm fjörutíu ár, þau fluttu í húsið árið 1906. Meðal barna þeirra var Halldór H. Jónsson arkítekt sem hannaði ýmsar byggingar í bænum. Texti og myndir: GJ

Gömul hús í Borgarnesi – myndasyrpa

Skessuhorn heldur nú áfram umfjöllun sinni um gömul hús í þéttbýli á Vesturlandi. Sambærileg úttekt hefur verið gerð á Akranesi og í síðustu viku birtum við myndir af broti af þeim annars mörgu fallegu húsum sem hlúð hefur verið að í Stykkishólmi.