Svipmynd frá fundinum í Ólafsvík. Texti og myndir: AF

Rætt um samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs á opnum fundi í Ólafsvík

Á fimmta tug gesta mættu á fund sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, boðuðu til á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík síðdegis í gær. Fundurinn var hluti af sjö funda röð sem samtökin standa fyrir um þessar mundir víðsvegar um landið. Leitað var svara við spurningunni: „Hvað hefur sjávarútvegurinn gert fyrir þig?“ Til umræðu var sjálfbær nýting sjávarauðlindarinnar og hvernig arðinum af henni er skipt. Samtökin vildu heyra beint og milliliðalaust hvað brennur á fólki í tengslum við sjávarútveg.