
Meta framleiðslu og eftirspurn eftir kjöti
Matvælaráðuneytið hefur gefið út innanlandsvog kindakjöts. Hlutverk vogarinnar er að skilgreina þörf og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti, m.a. með það að markmiði að álagsgreiðslur vegna gæðastýringar skiptist á þann hluta heildarframleiðslunnar sem ætluð er fyrir innanlandsmarkað. Til grundvallar útreikningum á innanlandsvog liggja upplýsingar um sölu kindakjöts eftir skrokkhlutum síðastliðna 24 mánuði og spá um líklega söluþróun. Innanlandsvog er birt í tvennu lagi, þ.e. annars vegar fyrir dilkakjöt og hins vegar fyrir kjöt af fullorðnu fé. Á grundvelli þessa líkans liggur áætlun um framleiðslu áranna 2023 – 2024 fyrir. Samhliða innanlandsvoginni hefur matvælaráðuneytið gert spá um framleiðslu sem byggir á fjölda vetrarfóðraðra kinda og framleiðslu pr. vetrarfóðraða kind síðustu fjögur ár. Með því er einnig hægt að áætla um útflutningsþörf á komandi framleiðsluári.