Innri-Hólmskirkja í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. vaks

Veglega var haldið upp á kirkjuafmæli í Innra-Hólmi

Sunnudaginn 8. október sl. var haldið upp á 130 ára afmæli Innra-Hólmskirkju og því fagnað að nú hafa verið gerðar gagngerar endurbætur á kirkjunni. Kirkjan var upprunalega vígð árið 1892. Hún hefur nú fengið verðskuldað viðhald og aðhlynningu sem velunnarar hafa styrkt og sóknarnefnd ásamt fleirum haft umsjón með.