Baldur er nú nýlega lagður í stað í sína næstsíðustu siglingu til Brjánslækjar.

Síðasta sigling núverandi Baldurs farin í dag

Ráðgert er að flóabáturinn Baldur fari í sína síðustu siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar í dag, föstudaginn 13. október. Farið var klukkan 9 í morgun og svo er síðari sigling dagsins á áætlun klukkan 15. Farþegabáturinn Særún mun sigla í Flatey þar til nýr Baldur kemur til heimahafnar síðari hluta þessa mánaðar. Unnið er að því í Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði að gera nýja Baldur, sem áður var Röst, kláran til siglinga á Breiðafirði.