
Jóhannes Briem er nýjasta björgunarskip Landsbjargar þessarar gerðar og er hér á leið til heimahafnar í Reykjavík. Áður voru sambærileg skip komin til Vestmannaeyja og Siglufjarðar. Ljósm. Landsbjörg
Næsta björgunarskip verður á Snæfellsnesi
Á laugardaginn var björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík afhent nýtt björgunarskip, það þriðja í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Skipið er smíðað í skipasmíðastöðinni Kewatec í Finnlandi, með ganghraða allt að 30 sjómílur, knúið áfram af tveimur öflugum Scania díselvélum og snigil drifum. Skipið, líkt og systurskip þess, er hlaðið nútíma tæknibúnaði, hitamyndavél, botnsjá ásamt því að aðbúnaður áhafnar er allur miklu betri en í eldri skipum félagsins.