
Svipmynd frá vorhátíð í Auðarskóla. Ljósm. úr safni/sm
Farsældarsáttmálinn verður fyrst lagður fram í Auðarskóla
Í síðustu viku var Farsældarsáttmálinn formlega gefinn út. Það var Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sem tók á móti fyrsta eintaki sáttmálans við hátíðlega athöfn í Rimaskóla í Reykjavík. Farsældarsáttmálinn er verkfæri sem gerir foreldrum og öðrum sem koma að verkefnum barna kleift að ræða sín á milli og setja niður ákveðin viðmið eða gildi sem þeim finnast mikilvæg til þess að styðja við þroska og farsæld allra barna í nærsamfélaginu.