
Tekin eru af öll tvímæli um öryggi neysluvatnslagna á Akranesi
Nýverið sendi fulltrúi Akraneskaupstaðar fyrirspurn til Krabbameinsfélags Íslands þar sem spurt var hvort tíðni krabbameins á Akranesi væri hærra í bæjarfélaginu en annarsstaðar á landinu. Það var gert í kjölfar umræðu sem spannst á íbúasíðu Akraness 30. september síðastliðinn. Málshefjandi þar skrifaði: „Veit fólk almennt um að í bæjarfélaginu okkar erum við að drekka vatn sem kemur úr gömlum asbest rörum, eða síðan 1945. Allir vita að asbest er mjög krabbameins valdandi og þarna er kannski komin skýring á háu hlutfalli hvítblæði og fleiri krabbameina á Akranesi. Mig langar að vita hver er stefna bæjaryfirvalda að skipta þessum rörum út? Eða réttara sagt að pressa á Veitur að gera svo.“ Þarna gætir ákveðins misskilnings sem nú hefur verið leiðréttur af fulltrúa Krabbameinsfélags Íslands og Veitum.
Nýgengi krabbameins jafnvel lægra en fyrir landið allt
Nú hefur Akraneskaupstað borist skriflegt svar frá Sigríði Gunnarsdóttur, forstöðumanni Rannsókna- og skráningaseturs Krabbameinsfélags Íslands. Í svari Sigríðar, sem Skessuhorn hefur undir höndum, kemur skýrt fram að tíðni krabbameins síðustu ár er jafnvel lægra á Akranesi en annarsstaðar á landinu. Þar segir m.a: „Í fyrirspurn frá ykkur er lýst yfir áhyggjum af því að krabbameinstíðni sé hærri á Akranesi en víða annars staðar á landinu, auk þess sem þið hafið áhyggjur af því að enn séu örfáar asbest lagnir sem kalt vatn streymir um. Árið 2013 var krabbameinstíðni á Akranesi skoðuð og var niðurstaðan þá að nýgengi þar væri ekki hærra en í Reykjavík, né á landinu öllu þegar skoðuð voru tilfelli greind 1998-2012. Nú höfum við skoðað tímabilið 2013-2022. Á því tímabili greindust árlega að meðaltali 17 karlar og 15 konur á Akranesi (sv.fél nr. 3000). Að teknu tilliti til aldursdreifingar og viktað með alþjóðlegum aldursstaðli (til að gera svæðin sambærileg) fæst að árlegt aldursstaðlað (w) nýgengi fyrir Akranes er lægra en fyrir landið allt, en munurinn er þó ekki marktækur.“
Öryggi aspest vatnslagna er tryggt
Á fyrrnefndum umræðuþræði á FB síðunni "Ég er íbúi á Akranesi" er m.a. að finna svar frá fulltrúa Veitna við umræddri fyrirspurn málshefjanda. Þar segir m.a.: „Í ljósi umræðna hér á íbúasíðunni vildum við láta ykkur vita að Veitur létu í fyrra efnamæla neysluvatnið á Akranesi í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands (HEV). Niðurstöðurnar sýna ótvírætt að ekkert asbest greinist í vatninu sem verið er að drekka í bæjarfélaginu. Við höfum haldið bæjaryfirvöldum vel upplýstum um okkar aðgerðir og niðurstöður.“
Þá segir einnig í svari Veitna að asbest hefur verið notað í vatnslagnir um áratugaskeið víða um heim og það er meðal annars að finna í eldri bæjarhlutanum á Akranesi. „Þegar unnið hefur verið að endurbótum á götum á Akranesi þar sem asbestlagnir liggja, hafa Veitur nýtt hvert tækifæri til að skipta þeim út fyrir nýjar PEH plastlagnir. Nú eru 12 kílómetrar eftir í dreifikerfinu sem á eftir að endurnýja. Endurnýjun á asbestlögnum innan dreifikerfis Akraness fylgir því að mestu eftir áætlunum Akraneskaupstaðar um endurbætur á gatnakerfinu. Öryggi núverandi asbestlagna á Akranesi er tryggt m.t.t. heilnæmi neysluvatnsins. Við höfum skoðað það ítarlega og rannsóknir styðja það.“