
Mótmælendur á Austurvelli. Ljósmyndir: mm
Fjölmenni mótmælti sjókvíaeldi – myndasyrpa
Um nónbil í gær var boðað til mótmælafundar á Austurvelli í Reykjavík. Að þeim stóðu bændur, landeigendur og náttúruverndarsinnar, sem segjast vera orðnir langþreyttir á skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart náttúrunni og villtum laxastofnum. Í aðdraganda mótmælanna var skipulögð bílalest norðan og austan úr landi og sameinaðist bílalestin á svæði Háskóla Íslands, þaðan sem gengið var fylktu liði framhjá tjörninni og á Austurvöll. Vandséð er að áður hafi fulltrúar landsbyggðarinnar verið jafn fjölmennur hópur við þinghúsið því talið er að vel á annað þúsund manns hafi verið á svæðinu. Blaðamaður Skessuhorns var á svæðinu og fangaði stemninguna.