
Hitaveitan nýtir vatn úr borholum við Grafarlaug í Reykjadal. Á myndinni er horft niður dalinn að Sauðafelli. Laugin var vatnslaus þegar myndin var tekin í júní 2019. Ljósm. Stefán Gíslason.
Rarik leggur heitavatnshemla af og tekur upp mæla í dreifbýli Dala
Rarik hefur tilkynnt íbúum í dreifbýlinu í Dölum, sem eru tengdir hitaveitunni frá Reykjadal, sem er í eigu Rarik, að í vetur verði hemlum fyrir heitt vatn skipt út fyrir orkumæla, eða svokallaða heitavatnsmæla. Gjaldskrá verður sú sama og fyrir húseigendur í þéttbýli Búðardals. Breytingin mun gera það að verkum að verð fyrir hitaveituna mun hækka verulega hjá þeim sem nota mikið vatn í dreifbýlinu. Hitaveita Dalabyggðar var tekin í notkun í nóvember 2000. Rarik keypti hitaveituna árið 2003 af Dalabyggð og hefur annast rekstur hennar síðan. Hitaveita nýtir vatn úr borholum við Grafarlaug í Reykjadal.