
Kátt á hjalla hjá krökkum í kartöfluleit – Myndasyrpa
Það var mikil spenna og eftirvænting í loftinu hjá nemendum fjórða bekkjar Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgunsárið á fimmtudaginn þegar þeir lögðu af stað á Byggðasafnið í Görðum. Í vor var kartöflugarður sem stendur við hliðina á húsinu Söndum á safnasvæðinu stunginn upp og fengu krakkarnir tvo fulla poka af útsæði ásamt bláum fjalladrottningum, gullauga og rauðum kartöflum frá Steindóri á Háteig til þess að setja niður. Þennan morgun voru þau mætt til að sjá uppskeru erfiðis síns og óhætt að segja að hún hafi verið ansi góð. Reiknaðist til að hún væri um það bil 175 kíló af rauðum, gulum og bláum kartöflum og fékk hver og einn nemandi stóran poka í hönd þegar búið var að taka upp allar kartöflurnar úr garðinum til að taka með sér heim í soðið. Blaðamaður Skessuhorns náði í skottið á þessum hressu krökkum og kennurum þeirra og tók nokkrar myndir í góða veðrinu í kartöflugörðunum heima.