
Borgarbraut 55. Ljósm. sþ.
Fjölbýlishús mun rísa við Borgarbraut 55 í Borgarnesi
Hafist er handa við að rífa húsið við Borgarbraut 55 í Borgarnesi. Það hefur hýst ýmsa starfsemi, lengst af smur- og dekkjaverkstæði, verslun Líflands, en Nytjamarkaður Skallagríms var þar undir blálokin. HK verktakar fengu lóðinni úthlutaðri í byrjun árs en að sögn Hákons Péturssonar, eiganda HK verktaka, mun nú verða reist fjölbýlishús á lóðinni. Heildarstærð nýbyggingarinnar mun verða um 1.000 fermetrar en í húsinu verða þrjár hæðir með stiga og lyftuhúsi. Tíu íbúðir verða í húsinu ásamt skrifstofurými á jarðhæð en stærð íbúða verður á bilinu 92-120 fermetrar.