Engar íbúðir verða byggðar á Jaðarsbökkum samkvæmt samkomulaginu, sem byggir á því að áfram verður unnið að undirbúningi hótelbyggingar, baðlóns og heilsulindar á svæðinu. Ljósm. mm

Ísold fær lóðir á Sementsreit og horfið er frá íbúðabyggingum á Jaðarsbökkum

Síðan í mars hefur verið unnið að stefnumótun fyrir Jaðarsbakkasvæðið á Akranesi á grundvelli viljayfirlýsingar milli Akraneskaupstaðar, Ísoldar fasteignafélags ehf., ÍA og KFÍA. Einnig hefur farið fram vinna við að undirbúa frumhönnun deiliskipulags fyrir svæðið líkt og fram kom í fyrrgreindri viljayfirlýsingu. Nú er komið að þeim tímapunkti að þrjár hönnunarstofur fara að hefja vinnu við frumhönnun svæðisins sem byggir á afurðum ofangreindrar vinnu. Á bæjarráðsfundi fimmtudaginn 24. ágúst síðastliðinn var samþykktur samningur við Ísold um úthlutun lóða á Sementsreit að því gefnu að uppbygging hótels, baðlóns og heilsulindar verði á Jaðarsbökkum samanber fyrrgreinda viljayfirlýsingu. Þær lóðir verða því ekki boðnar út á almennum markaði líkt og gert var með fyrsta byggingarreitinn á Sementsreit, en samkvæmt Haraldi Benediktssyni bæjarstjóra byggist væntanleg úthlutun á að af hótelbyggingu Ísoldar verði á Jaðarsbökkum.

Ísold fær lóðir á Sementsreit og horfið er frá íbúðabyggingum á Jaðarsbökkum - Skessuhorn